top of page

Persónuafsláttur

  • solveigesig
  • Feb 22, 2016
  • 1 min read

Allir sem hafa náð 16 ára aldri og hafa fasta búsetu á landinu eiga rétt á að persónuafslætti sem er afsláttur af tekjuskatti vegna launa einstaklinga. Afsláttur sem veittur er af þeirri upphæð sem þarf að greiða til skatts af launum. Persónuafslátturinn er 51.920 kr. á mánuði eða 610.825 kr. á ári árið 2016. Í fyrra var persónuafslátturinn 50.902 kr. á mánuði. Tekjur sem eru undir 142.153 kr. á mánuði eru skattlausar að teknu tilliti 4% lágmarksiðgjalds í lífeyrissjóð sem dregst frá launum áður en skattar eru reiknaðir. Það er hægt að safna upp persónuafslætti á milli mánaða og nýta síðar. Persónuafslátturinn fellur niður ef hann er ekki nýttur innan skattárs. Einnig er hægt að nýta persónuafslátt maka. Nú eru skattkort ekki lengur í gildi heldur er persónuafslátturinn rafrænn. Það þarf einungis að tilkynna launagreiðanda hvernig persónuafslátturinn er nýttur. Hægt er að fá upplýsingar um nýttan persónuafslátt á þjónustusíðu RSK, skattur.is.


 
 
 

Comments


© 2023 by Salt & Pepper. Proudly created with Wix.com

bottom of page