Olíugjald
- solveigesig
- Jul 29, 2015
- 1 min read
Greiða skal olíugjald af gas-, stein- og díselolíu sem nothæf er sem eldsneyti á ökutæki. Olíugjaldið er 57,40 kr. á hvern lítra af olíu og ofan á það leggst virðisaukaskattur.
Undanþága (lituð olía)
Olía er undanþegin gjaldskyldu í eftirfarandi tilvikum þegar í hana hefur verið bætt litar- og merkiefnum (nefnd lituð olía):
Til nota á skip og báta
Til húshitunar og hitunar almenningssundlauga.
Til nota í iðnaði og á vinnuvélar.
Til nota á dráttarvélar.
Til raforkuframleiðslu.
Til nota á ökutæki sem ætluð eru til sérstakra nota.
Til nota á beltabifreiðar og námuökutæki sem eingöngu eru notuð utan vega eða á lokuðum vinnusvæðum.
Til nota á bifreiðir í eigu björgunarsveita.

コメント